hitahvolf
Hitahvolfið tekur við að miðhvolfinu við miðhvörfin og teygir sig úr 85 km hæð upp í yfir 640 km hæð við hitahvörfin . Í þessu hvolfi eykst hitastigið aftur með aukinni hæð vegna þess að gastegundir innan þess gleypa í sig sólarorku. Í hitahvolfinu er hins vegar svo lítið af lofti að jafnvel þótt þar sé nokkuð hár hiti inniheldur loftið mjög lítinn varma hitastig ræðst af hreyfiorku sameinda og er ekki það sama og varmi; hreyfiorka sameinda í hitahvolfinu er mikil og hitastigið því hátt en þar sem loftið er svo þunnt myndi t.d. geimfari í geimgöngu í 300 km hæð ekki finna fyrir neinum hita.