Andrúmsloft jarðar
Gufuhvolf kallast andrúmsloft jarðar, sem samanstendur einkum af þurru lofti auk eftirfarandi efna í mun minna magni: vatnsgufu 0 til 4%, vatnsdropa, ískristalla og ryks. Meðalloftþrýstingur við yfirborð jarðar er ein loftþyngd, samsvarandi 1013,25 hPa. Gufuhvolfið skiptist í veðrahvolf (þar sem veðrið verður), heiðhvolf, miðhvolf og hitahvolf. Endimörk lofthjúpsins eru ekki skýr, en oftast er miðað við Kármán línuna, sem er um 100 km hæð yfir sjávarmál.